Heimsglugginn

Heimsglugginn

Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson héldu áfram að ræða um málefni bresku póstþjónustunnar og stærsta réttarfarshneyksli í sögu landsins á síðari tímum þegar tæplega eitt þúsund útbússtjórar í pósthúsum voru sóttir til saka fyrir skjalafals og þjófnað og á áttunda hundrað voru sakfelldir. Næstum öll voru saklaus, sökudólgurinn var Horizon, gallað bókhaldskerfi sem Fujitsu bjó til fyrir breska póstinn. Nick Read, forstjóri Póstsins, sat fyrir svörum hjá viðskiptanefnd þingsins og gat fáu svarað nema að hann viðurkenndi að greiðslur sem útibússtjórar voru krafðir um hefðu mögulega verið notaðar til að greiða bónusa yfirmanna póstsins. Þá var rætt um frumvarp sem neðri málstofa breska þingsins samþykkti í gærkvöld um að vísa hælisleitendum sem koma með bátum til Bretlands til Rúanda. Lávarðadeild þingsins fær frumvarpið nú til afgreiðslu og viðbúið er að þar verði gerðar breytingar á því enda er málið er afar umdeilt og margir telja frumvarpið brjóta í bága við alþjóðalög og mannréttindasamninga. Þá var rætt um nýafstaðnar forsetakosningar á Taívan og þingkosningar sem verða í apríl á Indlandi.

Sektir fóru til að greiða bónusaHlustað

18. jan 2024