Hoobla PodCastið

Hoobla PodCastið

Í þessum 14. þætti Hoobla PodCastsins ræðir Harpa við Kolbrúnu um hvernig það er að takast á við atvinnumissi, byrja að gigga sem sjálfstætt starfandi mannauðssérfræðingur, markþjálfunarnámið, markmiðasetningu og margt margt fleira.  Kolbrún hefur tekist á við ýmsar áskoranir, eins og við öll. Hún deilir með okkur hversu miklu máli jákvætt viðhorf og húmor skipta í lífi og starfi.  Covid hafði þau áhrif á atvinnurekstur Bláa Lónsins að hún missti starf sitt sem fræðslustjóri. Hún lýsir því hvernig það var að stökkva út í djúpu laugina og fara að starfa sjálfstætt í kjölfarið, sem var talsverð áskorun og hún fann klárlega fyrir ótta. En það er allt hægt ef maður er með jákvætt hugarfar og lætur óttann ekki stoppa sig. Í þessu viðtali fáum við að kynnast Kolbrúnu og hennar reynslu! Takk fyrir virkilega fróðlegt og einlægt viðtal Kolla. ⭐️ - Vefsíða Hoobla https://hoobla.is - Spotify: https://open.spotify.com/show/717uLSl9tsa87SqRASFBTr?si=55B8zQ89Tni77_gRaURyiw - Youtube: https://www.youtube.com/channel/UCjKwiRDNJTd1yg44_0m8EjQ -Linkedin: https://www.linkedin.com/company/hoobla - Facebook https://www.facebook.com/hooblaofficial - Instagram https://www.instagram.com/hooblaoffic... -Tiktok https://https://www.tiktok.com/@hoobl...

14# - Kolbrún Magnúsdóttir, markþjálfi og mannauðssérfræðingurHlustað

23. feb 2022