Hoobla PodCastið

Hoobla PodCastið

Jóhann, eða Jói eins og hann kallar sig, stofnaði fyrirtæki sitt PLAIO árið 2021. PLAIO fékk væna fjármögnun í árslok 2021 og hefur nú tryggt sér fjármagn til að hægt sé að halda áfram með hugmyndina og byggja upp öflugt fyrirtæki. Hann lýsir þeirri vegferð sem hann hefur upplifað frá því hann fór af stað með hugmynd sína og gefur góð ráð varðandi hvernig er gott að komast áfram með góða hugmynd. Hann talar um mikilvægi teymisins og mikilvægi góðrar kynningar á hugmyndinni. Hann er talsmaður þess að fara út fyrir þægindarammann til að ná árangri í lífinu. Ef maður er stöðugt inni í þægindarammanum takmarkar maður möguleika sína.  Takk Jói fyrir mjög áhugavert spjall um vegferð nýsköpunarfyrirtækisins PLAIO.   ⭐️ - Vefsíða Hoobla https://hoobla.is

Jóhann Guðbjargarson, frumkvöðull, stofnandi og framkvæmdastjóri PLAIOHlustað

06. apr 2022