Karfan

Karfan

Kristófer Acox, leikmaður Vals, er viðmælandi 14. þáttar af Undir Körfunni. Kristófer fer yfir ótrúlegt úrslitaeinvígi liðsins gegn Tindastól og hvernig það var að spila fyrir troðfullum höllum í háspennu einvígum ásamt því að gefa innsýn inn í búningsklefa Vals.Kristófer hefur leikið bæði í Frakklandi og Filippseyjum á ferli sínum og kemur hann inn á tímann sinn þar.Meiðsli Kristófers voru alls ekkert leyndarmál þegar hann var hjá KR, þvert á það sem áður hefur verið haldið fram. Ákvörðunin að skipta yfir til Vals var auðveld þegar Jón Arnór, Pavel og Finnur voru allir komnir til félagsins. Kristófer skilur þó pirring í stuðningsmönnum KR vegna félagaskiptanna en hann ræðir viðskilnaðinn við KR, sem verður tekin fyrir af Landsrétti bráðlega.Ásamt þessu eru fastir liðir eins og vaninn er, stemningin í klefanum hjá Val, spurningar af Subway spjallinu, draumalið samherja Kristófers og úrvalslið hans í Subway-deild karla.Umsjón: Atli Arason Undir Körfunni er í boði Subway, Lykils og Kristalls.

Undir Körfunni: Kristófer Acox um viðskilnaðinn við KR, atvinnumennskuna og úrslitaeinvígið gegn Stólunum „þessi sería verður umtöluð næstu árin“Hlustað

03. jún 2022