Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn Hallgrímur Ólafsson, eða Halli melló eins og hann er oft kallaður. Hann er fæddur og uppalinn á Akranesi, hann starfaði meðal annars á Akraborginni og fór á sjóinn með pabba sínum. Hann byrjaði ungur að spila tónlist og syngja, fluttist um tvítugt til Reykjavíkur, fór í Leiklistarskólann, þar sem hann tengdi misvel við það sem þar var kennt og hefur svo meira og minna verið að leika í leikhúsunum frá því hann útskrifaðist. Við fórum með Hallgrími á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag. Og svo sat Hallgrímur óvænt áfram með okkur og Sigurlaugu Margréti í matarspjallinu. Þar talaði hann um sinn uppáhaldsmat, purusteik, kjötfars, saltfisk og fleira.

Hallgrímur Ólafsson föstudagsgestur og leynigestur í matarspjallinuHlustað

26. apr 2024