Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Landsfundur Landssambands eldri borgara verður haldinn á morgun kl.10 á Hótel Natura. Búist er við fjölda fólks á fundinn frá 55 félögum eldra fólks af öllu landinu, en um 37 þúsund manns eru innan sambandsins. Á fundinum var sérstök áhersla lögð á undirbúning næstu kosninga til Alþingis og möguleikum á að beina kröftum fólks til þeirra stjórnmálaflokka sem styðja kjarabaráttu eldra fólks. Landssamtök eldri borgara hafa reynt að vekja athygli stjórnvalda á að um 15.000 eldri borgarar búa við slæm kjör og brýnt sé að grípa til sértækra aðgerða til að rétta hlut þeirra. Helgi Pétursson formaður LEB kom í þáttinn í dag. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í þetta sinn fjallaði hann um möguleikann á að hlutlaust karlkyn eigi undir högg að sækja í íslensku og vitnað er í nýlega grein sem fjallar um málið, auk þess sem vafasöm rannsókn pistlahöfundar um sama mál er lítillega rædd. Þá er fjallað um sanddæluskipið Trölla sem nú er staðsettur austur á Hornafirði, en hann og þjónustupramminn Nökkvi eiga fimmtíu ára afmæli á þessu ári. Þeir eiga mjög merkilega forsögu í 577 metra hæð, órafjarri sjó. Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Kamilla Kjerúlf lögfræðingur, barnabókarithöfundur og saksóknarfulltrúi hjá Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Kamilla talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Undir yfirborðinu e. Freida McFadden Þú sérð mig ekki e. Evu Björg Ægisdóttur DJ Bambi e. Auði Övu Ólafsdóttur Sjö systur e. Lucinda Riley Harry Potter bækurnar e. JK Rowling Ungfrú Ísland e. Auði Övu Ólafsdóttur The Hunger Games serían e. Suzanne Collins Tónlist í þættinum í dag: Lukta-Gvendur / Björk Guðmundsdóttir og Tríó Guðmundar Ingólfs (Nat Simone, texti Eiríkur Karl Eiríksson) Manic Monday / The Bangles (Prince) Massachusetts / Bee Gees (Maurice, Robin og Barry) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Landssamband eldri borgara, vinkill og Kamilla lesandinnHlustað

13. maí 2024