RÉTTI ANDINN

RÉTTI ANDINN

Gestur þáttarins er Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstöðumaður hjá Icelandair. Sylvía starfaði áður hjá Landsvirkjun, þar sem hún var deildarstjóri jarðvarmadeildar, og hjá Amazon í Evrópu, bæði við rekstur og áætlanagerð sem og í vöruþróun á Kindle. Sylvía starfaði einnig um tíma hjá Seðlabanka Íslands og Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins. Það sem er einstakt og skemmtilegt við Sylvíu er að hún hefur ótrúlega fallega nærveru, hún er róleg, samkvæm sjálfri sér og yfirveguð, á sama tíma og hún býr yfir gríðarlegri dýnamík, þekkingu, reynslu, og atorkusemi. Ég heillaðist strax af karakternum hennar þegar ég kynntist henni í verkfræðideild Háskóla Íslands hér um árið og hefur hún allar götur síðan sýnt og sannað hvers hún er megnug. 

Sylvía Kristín Ólafsdóttir Hlustað

11. apr 2020