Samfélagið

Samfélagið

Mikill eldur kom upp í sögufrægu húsi; gömlu kauphöllinni, Børsen, í Kaupmannahöfn í gær. Um helmingur byggingarinnar er sagður hafa brunnið til kaldra kola og ljóst að tjónið er gríðarlegt. Bæði efnislegt tjón en bruninn er líka vitaskuld mikið áfall fyrir Dani enda hefur þetta 400 ára gamla hús mikla þýðingu fyrir sögu þjóðarinnar. Viðbúnaður slökkviliðs var mikill og við sáum á myndum hvernig fólk þusti inn í bygginguna til að bjarga verðmætum. Málverkum, ljósakrónum og öðrum munum. Við ætlum að ræða þennan bruna út frá sjónarhóli slökkviliðsins, Vernharð Guðnason er deildarstjóri á aðgerðasviði Slökkviliðs Höfuðborgarsvæðisins. Svo bárust fréttir af því í gær að HM í handbolta karla ætti að fara fram á Íslandi eftir sjö ár - árið 2031. Þetta eru mikil tíðindi fyrir íslenskar íþróttir og auðvitað handboltann sérstaklega. Það hefur komið fram að forsenda þess að þetta mót fari fram hér sé bygging nýrrar þjóðarhallar og flest sem bendir til þess að hún muni rísa. Það verður því mörg horn að líta hjá formanni HSÍ á næstu árum. Guðmundur B. Ólafsson ætlar að ræða þetta við okkur. Við heyrum málfarsmínútu og svo kemur Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjall í lok þáttar og ræðir nýjar rannsóknir á örplasti.

Bruni í Kaupmannahöfn, HM í handbolta 2031, knepra og örplastHlustað

17. apr 2024