Spegillinn

Spegillinn

Sendinefndir frá Egyptalandi, Katar, Bandaríkjunum og Ísrael settust í dag að samningaborðinu í Kaíró í Egyptalandi til að reyna enn einu sinni að semja um vopnahlé á Gaza. Meðal þeirra sem voru mættir til að reyna að miðla málum voru yfirmenn bandarísku og ísraelsku leyniþjónustunna CIA og Mossad. Nýlega birti greiningardeild ríkislögreglustjóra árlega skýrslu sína um hryðjuverkaógn á Íslandi. Hún talin að þriðja stigi, aukin ógn. Ógnin er talin meiri en áður því til staðar sé ásetningur eða geta og hugsanleg skiplagning hryðjuverka. Runólfur Þórhallsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá greiningardeildinni segir að horft sé til marga þátta þegar staðan er metin, meðal annars ástands í nágrannalöndum og sem betur fer sé staðan betri hér. Mokveiði hefur verið hjá línubátum víða um land undanfarnar vikur og eru sumar veiðiferðirnar líkastar ævintýri. Þannig fékk þrjátíu tonna bátur frá Hornafirði fékk tæp 43 tonn á eina og sömu línulögnina og þurfti tvær ferðir til að landa aflanum. Veiðin er nánast eingöngu þorskur og sjómenn velta fyrir sér hvort ekki sé tilefni til að auka þorskkvótann.

Reynt að semja um vopnahlé á Gaza, hryðjuverkaógn, ævintýralegt fiskeríHlustað

13. feb 2024