Betri helmingurinn með Ása

Betri helmingurinn með Ása

Fjölmiðlamaðurinn Einar Þorsteinsson hefur verið áberandi á skjám landsmanna um árabil, bæði sem fréttamaður en einnig sem einn af stjórnendum Kastljóss en hefur hann nú sagt skilið við sjónvarpið í bili og freistar gæfunnar í borgarpólitíkinni. Það var einmitt á RÚV sem hann kynntist sínum betri helming, Millu Ósk Magnúsdóttur, en var hún einnig að vinna á fréttastofunni á þeim tíma.Milla fór einnig út í pólitík, þó aðeins á undan Einari og er hún í dag aðstoðarkona Willum Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra en þar áður starfaði hún í menntamálaráðuneytinu við hlið Lilju Alfreðsdóttur. Það er óhætt að segja að það sé nóg um að vera hjá þeim hjónum en ásamt því að vera nýflutt & Einar í miðri kosningabaráttu eiga þau von á sínu fyrsta barni saman. Í þættinum fórum við um víðan völl og ræddum við meðal annars árin þeirra á RÚV, draumabrúðkaupið á Spáni sem breyttist í sveitabrúðkaup á Varmalandi sem breyttist í lítið brúðkaup í Hallgrímskirkju, bónorðið, kraftaverkið að verða ólétt ásamt því að þau sögðu mér margar skemmtilegar sögur úr þeirra sambandstíð, þar á meðal skemmtilegan misskilning Einars í kirkjunni þegar Milla sýndi söngvaranum óvænta athygli.Aha.is -  https://aha.isBlush.is -     https://blush.is/Bagel 'n' Co -   https://https://www.bagelnco.is/

#50 - Einar & MillaHlustað

30. mar 2022