Betri helmingurinn með Ása

Betri helmingurinn með Ása

Í þessum þætti átti ég stórskemmtilegt spjall við Margréti Láru Viðarsdóttur, eina okkar allra bestu fótboltakonu fyrr og síðar og eiginmann hennar og betri helming, Einar Örn Guðmundsson sjúkraþjálfara og fyrrum handboltamann. Margrét Lára var eins og flestir vita lykilmaður í íslenska landsliðinu í fótbolta um árabil og á heldur betur glæstan feril að baki sem við fórum yfir í þættinum en starfar hún í dag sem sálfræðingur ásamt því að birtast reglulega á skjám landsmanna til dæmis í knattspyrnuumræðuþættinum "Völlurinn".Einar er sem fyrr segir sjúkraþjálfari og hefur starfað sem slíkur til fjölda ára en vinna þau Margrét nú hörðum höndum að opnun á sameiginlegri stofu þar sem þau munu bjóða upp á sínar þjónustur ásamt fleiru. Margrét Lára lék lengst af með Val, þegar hún spilaði hér á landi og var það einmitt þar sem hún hitti Einar í fyrsta sinn. Margrét Lára stakk því að vinkonu sinni að hún hafði miklar mætur á sjúkraþjálfaranum og var Einar ekki lengi að grípa þann bolta á lofti, enda á þeim tíma efnilegur handboltamaður, og byrjuðu þau að deita í kjölfarið.Þau segja frá því í þættinum að margir hefðu efast um tilvist þessarar nýju kærustu hans Einars þar sem hún virtist alltaf upptekin þegar fjölskyldan hittist enda var hún þá aftur komin út í atvinnumennsku.Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og eiga þau í dag saman þrjá drengi og giftu þau sig árið 2020 í vestmannaeyjum með pompi og prakt.Í þættinum ræddum við meðal annars atvinnumennskuna & landsliðið,  Covid brúðkaupið í eyjum, mikið keppnisskap þeirra beggja, fjölskyldulífið í fótboltabransanum og deildu þau með mér mörgum frábærum sögum úr þeirra sambandstíð.Blush.is -     https://blush.is/Bagel 'n' Co -   https://https://www.bagelnco.is/Dominos  -  https://www.dominos.is/Promennt  -  https://www.promennt.is/isBerjamó -  https://berjamo.is/

#52 - Margrét Lára & Einar ÖrnHlustað

13. apr 2022