Endalínan

Endalínan

Kæru hlustendur , þá er Endalínan mætt í WhiteFox stofuna , alltaf með heimavallarrétt og við fengum aftur góðan gest en þjálfarinn síungi Daníel Guðni Guðmundsson mætti og hjálpaði okkur við að fara í gegnum Leikdag 3 í Undanúrslitaeinvígunum. Njarðvík 1 - Tindastóll 2 - Tindastóll hélt sama fjörinu í fyrsta leikhluta áður en second unit Njarðvíkur svarar 16 - 0  - Hvaða atriði voru lykillinn að sigri Njarðvíkinga og hvað þurfa Tindastólsmenn að bæta ?  - Njarðvíkingar fóru dýpra í bekkinn , fáum við að sjá meira af þessu ? - Mun hjálpa Njarðvík að lykilmenn þurftu ekki að keyra sig út í þessum leik ?  - Hvernig bregðast Tindastólsmenn við núna ? Eru þeir uppvið vegg ?  - Sjáum við aðra geðveiki í Síkinu og alvöru Tindastólsbolta á laugardagskvöldið ?  Þór Þ 0 - Valur 3  - Sópurinn á loft í höfninni , Kúst og Fæjó back to back hjá Valsmönnum - Þegar varnarskrímslið Valur finnur sóknar mojo líka þá er MJÖG erfitt að eiga við þá  - Kári í ham , Gamli Kári mættur og orðinn skynsamari og meiri leiðtogi - Hvernig er þetta tímabil í Höfninni ? Ásættanlegt ? - Voru mistök að taka Kyle ? Þórsliðið ekki með sömu einkenni og í fyrra. - Hversu sterkir verða Valur í Finals ?  Allt þetta og auðvitað meira til að vanda í stútfullum þætti á Endalínunni í boði White Fox , Viking Lite (léttöl) , Cintamani og KefRestaurant&DiamondSuites

142. Þáttur - Under Pressure ! ( 4. Liða - Leikdagur 3 ) Hlustað

28. apr 2022