Handboltinn okkar

Handboltinn okkar

Kvartettinn í Handboltinn okkar komu sér fyrir í studíoi sínu í dag þar sem þeir tóku upp fjórða þáttinn sinn á þessu tímabili. Að þessu sinni fóru þeir yfir árangur Vals í Evrópudeildinni sem og verkefnið sem bíður þeirra í næstu umferð. Þá opinberuðu þeir spá þáttarins fyrir Olísdeild karla sem og Grill66 deild karla en þeir fengu aðstoð frá sérfræðingum þáttarins en það eru þau, Hrafnhildur Ósk Skúladóttir, Einar Andri Einarsson, Valtýr Björn Valtýrsson, Brynjar Valsteinsson, Daníel Berg Grétarsson, Brynja Magnúsdóttir og Ívar Benediktsson. Þeir fóru yfir það hverjir eru lykilmenn liðanna í Olísdeild karla að mati þáttarins auk þess að velja besta liðið skipað af leikmönnum í Olísdeildinni. Kvartettinn er sammála því að það stefni í gríðarlega skemmtilegan vetur í Grill66 deildinni í vetur en þeir spá því að Harðarmenn vinni baráttuna við Þór Ak. Og Fjölni um að komast upp í Olísdeildina í vetur.

Spá fyrir Olísdeild karla og Grill66 deild karla - Farið yfir besta liðið skipað af leikmönnum úr Olísdeild karlaHlustað

08. sep 2021