Handboltinn okkar

Handboltinn okkar

Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klakastúdíóið sitt í dag og tóku upp sinn þrítugasta og sjöunda þátt á þessu tímabili. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange og Gestur Guðrúnarson. Í þætti dagsins fóru þeir yfir undanúrslitaleikina í Coca-Cola bikar karla og kvenna. Þá rýndu þeir í úrslitaleikina sem fara fram síðar í dag. Þeir félagar eru sammála um að það verði hörku viðureign í kvennaflokki þegar að Valur og Fram mætast þar sem að þeir telja að úrslitin munu ráðast á loka andartökum leiksins. Þeir voru ekki eins samstíga um karla leikinn þar sem að Valur og KA eigast við, Jói telur að Valsmenn eigi eftir að sigra þennan leik auðveldlega en Gestur var hins vegar ekki sammála því og telur að þetta verði hörkuleikur. Að lokum tóku þeir félagar smá spjall um málefni Selfoss þar sem að þar hefur ýmislegt komið í ljós eftir að síðasta þætti lauk og þá fóru þeir aðeins yfir málefni A-landsliðs kvenna.

Allt um Coca-Cola bikarkeppni karla og kvenna - Rýnt í úrslitaleikina - Aðeins meira um Selfoss og kvennalandsliðiðHlustað

12. mar 2022