Leikfangavélin

Leikfangavélin

Eftir kærkomið og gott frí störtum við nú Leikfangavélinni að nýju. Það er komið heilt ár síðan ég fékk til mín viðmælanda hingað í þáttinn og því fannst mér svo sannarlega tími til kominn að bjóða velkominn aldeilis hreint frábæran gest. Alexander Örn Númason er fæddur þann 20. Nóvember árið 1993 og er uppalinn í Hafnarfirði. Hann er með betri bassaleikurum landsins og spilar með einni stærstu rokksveit Íslands, og hefur gert svo núna í rétt 10 ár, hljómsveitinni frábæru The Vintage Caravan. Hann lifir draum margra íslenskra ungmenna en passar þó ávallt vel upp á að sökkva ekki ofan í rokkstjörnu lífernið fræga. Alexander kom í heimsókn í Leikfangavélina og saman áttum við skemmtilegt og fræðandi "bassaspjall". Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Alexander Örn Númason - The Vintage CaravanHlustað

18. apr 2022