Lestin

Lestin

Undir lok síðasta mánaðar fengu allir unglingar næntísins sameiginlega raðfullnægingu þegar tilkynnt var að þekktustu villingar tjallapoppsins, Oasis, ætluðu að koma aftur saman á nokkrum tónleikum á Bretlandseyjum næsta sumar. Milljónir næntísunglinga hrúguðust inn á vefsíðu miðasölurisans Ticketmaster snemma morguns þann 31. Ágúst og vonuðust til að kaupa miða á rúmlega 11 þúsund krónur, en það var auglýst verð á ódýrustu miðum. En hjá flestum fór það öðruvísi en áætlað var. Við heyrum um síkvikt verðlag, dynamic pricing, á tónleikamiðum og fleiri hlutum. Haukur Már Helgason veltir fyrir sér hugtakinu upplýsingaóreiða í pistlaröð í Lestinni. Í fyrsta pistlinum fer hann aftur til ársins 1813 og veltir fyrir sér fréttabanni og ólöglegum brandara. Við förum í heimsókn í Bíó Paradís og ræðum við starfsfólk þar, sem hefur orðið vart við draugagang í húsinu. Lausnin er auðvitað að halda miðilsfund. Það verður gert annað kvöld og um leið verður heimildamyndin The Gullspang Miracle frumsýnd. Myndin segir sögu tveggja systra sem komast í kynni við konu sem lítur alveg eins út og systir þeirra sem lést mörgum áratugum fyrr.

Oasis miðasölurugl, upplýsingaóreiða árið 1813, draugagangurHlustað

18. sep 2024