RÉTTI ANDINN

RÉTTI ANDINN

Gestur þáttarins er Haukur Hannesson, framkvæmdarstjóri AGR Dynamics. Haukur hefur starfað hjá fyrirtækinu í tæp 19 ár, þar af 14 ár sem framkvæmdarstjóri. Áður gegndi hann stöðu ráðgjafa í aðfangakeðjum (SCM - Supply Chain Management) og sölustjóra hjá fyrirtækinu. Haukur hefur gengið í gegnum margvísleg tímabil í rekstri AGR á þessu tímabili, en á sama tíma náð að byggja það upp og víkka út reksturinn með frábærum árangri. Ég hef þekkt Hauk um árabil og er nokkuð viss um að hann sé sá stjórnandi sem við öll viljum hafa; Jákvæður, umhyggjusamur og yfirvegaður ásamt því að vera ákveðinn, útsjónasamur og samkvæmur sjálfum sér. Það hefur alltaf vakið athygli mína að í öllu því umróti og starfaflæði í samfélagi okkar tíma, hafi Haukur alltaf valið að starfa hjá sama fyrirtækinu. Það er kannski klisja að segja það en það er nokkuð ljóst að Haukur brennur fyrir það sem hann er að fást við hverju sinni og hefur mikla ástríðu fyrir bæði starfinu og fyrirtækinu, eftir 19 ár í starfi. 

Haukur HannessonHlustað

28. mar 2020