RÉTTI ANDINN

RÉTTI ANDINN

Gestur þáttarins er Sigríður Heimisdóttir, vöruhönnuður. Sigga hefur lengst af starfað hjá Ikea í Svíþjóð, fyrst sem vöruhönnuður, svo þróunarstjóri smávöru og síðar verkefnastjóri sértækra nýþróunarverkefna. Einnig var hún verkefnastjóri yfir öllu samstarfi við hönnunar og nýsköpunarstofnanir á vegum höfuðstöðva IKEA.  Árið 1995 stofnaði hún hönnunar- og ráðgjafarfyrirtækið Hugvit&Hönnun og 15 árum síðar stofnaði hún Labland, hönnunarstofu í Malmö í Svíþjóð sem vann fyrir mörg alþjóðleg fyrirtæki.  Það fer ekkert á milli mála að það er alltaf líf og fjör þar sem Sigga Heimis er. Hún elskar að hafa í nægu að snúast, leggur mikinn metnað í það sem hún tekur sér fyrir hendur og svo geislar hún af gleði þannig að eftir því er tekið.

Sigríður Heimisdóttir Hlustað

20. maí 2020