RÉTTI ANDINN

RÉTTI ANDINN

Gestur þáttarins er Ýmir Örn Finnbogason, fjármálastjóri Teatime. Ýmir er einn stofnenda Teatime, en hann var jafnframt einn lykilstarfsmanna hjá Plain Vanilla, sem þróaði QuizUp spurningaleikinn sem náði til meira en 100 milljón notenda. Ýmir starfaði áður hjá Deloitte um árabil í rekstrarráðgjöf í sjávarútvegi eftir skemmtilega og lærdómsríka reynslu af rekstri frystihúss vestur á fjörðum með félaga sínum.  Það dylst engum að hér er á ferðinni ákaflega jákvæður, þrautseigur og lífsglaður maður sem er óhræddur við að hoppa á tækifærin þegar þau bjóðast. Ýmir er jafnframt afar handlaginn og þegar hann er ekki að sinna vinnu eða stækkandi fjölskyldu, og þegar hann er með báðar hendur í lagi, þá fer hann út í bílskúr og smíðar eins og enginn sé morgundagurinn.

Ýmir Örn FinnbogasonHlustað

09. jún 2020