Þvottahúsið og Alkastið b%$#es

Þvottahúsið og Alkastið b%$#es

Nýjasti gestur Arnórs og Gunnars í Alkastinu er engin annar en Óskar Grétuson, einnig þekktur sem Boris. Óskar Vann fjíögur ár í röð frá 2005 - 2008 sterkasti maður Íslands og keppti einnig í sterkasti maður heims með góðum árangri. Óskar ólst upp á Grundarfyrði áður en hann flutti í Fellahverfið í Raykjavík. Þasr upplifði hann að vera talsvert á skjön og átti erfitt með að eignast vini og upplifði mikið einelti og þá einna helst því hann var þykkur í vextinum. Sem unglingur hóf hann störf hjá Landhelgisgæslunni og upplifði mikið áfall við björgun flutningarskipsins Víkartinds er gæsluskipið fékk á sig tvöfalt brot og lagðist bókstaflega á hliðini með þeim afleiðingum að lærimeistari hann Elli lést eftir alvarlegt höfuðhögg. Óskar kynntist kraftlyftingum og sýndi þar mikla hæfileika og metnað. Hann óx fljót í metorði og lærði af mörgum af bestu kraftlyftingarmönnum Íslands. Í sinni síðustu lyftu á hans síðasta móti sem hann tók þátt í stórslasaðist hann og að eigin sögn bókstaflega murkaði á sér taugakerfið með þeim afleiðingum að hann keppti aldrei aftur. Hann fór inn í tímabil þar sem hann glímdi við allskonar verki og undarleg einkenni sem læknar áttu erfitt með að kortleggja en einn ráðlagði honum að skella sér bara í nudd og það átti eftir að hafa miklar aðfleiðingar í för með sér. 

Óskar Grétuson AKA Boris, sterkasti nuddarinnHlustað

11. mar 2024