Leiðin okkar allra

Leiðin okkar allra

Öll erum við á andlegri vegferð þar sem áföll, vegtyllur, skóleysi og skringilegar tilviljanir bæði leiða okkur í villur eða koma okkur á sporið; svo við rötum aftur leiðina heim. Ása og Bolli fá til sín ólíkt fólk úr ýmsum áttum, sem þó eiga svo margt sameiginlegt - eins og raunin er með okkur flest - í yfirveguðu spjalli um það sem þroskar manninn þó á hann reyni líka. Sögur af vonum sem veita nýja sýn á trú og tilgang, brot úr veruleikanum sem hafa þá tilhneigingu til að raðast saman þannig að einhvernveginn stækkar allt við það eitt að maður reyni að skilja eitthvað í því. Sögur af kjarki, kærleika og þeirri kyngi sem fylgir því að finna Krist á veginum, hvort sem hann bara kallaði til manns eða reisti óvænt við - þið vitið. Umsjónarmenn eru Arnaldur Máni Finnsson, Ása Laufey Sæmundsdóttir og Bolli Pétur Bollason. Þátturinn er tekinn upp í Stúdíó Stað og gefinn út af Kirkjuvarpi Þjóðkirkjunnar, Katrínartúni, Reykjavík. Upphafsstef og söngur, Þorsteinn Einarsson. Þakkir Einar Georg Einarsson. Öll réttindi áskilin. 2022 - Þjóðkirkjan

  • RSS

Aftur af stað: Ég hef einu sinni grátið...Hlustað

11. nóv 2022

Verði ljós, elskan: Soffía Bjarnadóttir - jólaþátturHlustað

21. des 2021

Á leiðinni heiman og heim: KynningHlustað

19. des 2021

Við erum saman í samfélaginu: Svavar Knútur KristinssonHlustað

17. des 2021

Að þekkja skugga sinn og drauma: Haukur Ingi JónassonHlustað

17. des 2021

Í nærgætnu skjóli: Rósa Björg BrynjarsdóttirHlustað

17. des 2021

Björt mey og missir: Ólafur Teitur GuðnasonHlustað

17. des 2021

Þroskuð trú og tilgangur: Svana Helen BjörnsdóttirHlustað

16. des 2021