Selfoss hlaðvarpið unir sér ekki hvíldar þegar handboltinn er kominn á business enda tímabilsins. Frídagur verkalýðsins, 1. maí var Arnari Helga engin fyrirstaða til að setjast niður með góðum gestum til að fara yfir stöðu mála í úrslitakeppninni í Olísdeild karla.
Í smiðju stúdíóinu í dag voru mættir tveir leikmenn, Fyrirliðinn Hergeir Grímsson og gleðigjafinn Richard Sæþór Sigurðsson. Með þeim fengum við svo í fyrsta sinn Gísla Guðjónsson, bæjarmála frambjóðanda, hestamann, en í dag fyrst og síðast stuðningsmaður Selfoss.
Strákarnir fóru vel yfir þetta svakalega einvígi sem Selfossliðið fór í gegnum á móti FH, eitt besta 8-liða úrslitaeinvígi í talsverðan tíma. Einvígið sem framundan er á móti Val og svo aðeins um handboltann almennt.
Úrslitaeinvígi Selfoss og Vals:
1. leikur - Origo höllin | mán, 2. maí kl 19.30
2. leikur - Set höllin | fim, 5. maí kl 19.30
3. leikur - Origo höllin | sun, 8. maí kl 19.30
4. leikur - Set höllin | mið, 11. maí kl 19.30
5. leikur - Origo höllin | fös, 13. maí kl 19.30
Miðasala á alla leikina á Stubbi!
Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
Lokalag: Enn þá, Skítamórall