Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins og Líf Magneudóttir oddviti VG í borginni eru sammála um að ofurþétting byggðar sé óæskileg en ósammála um hvernig á henni stendur víða um borg. Þær eru gestir Andreu Sigurðardóttur í Dagmálum dagsins en í þættinum eru skipulagsmál og fjármál borgarinnar í brennidepli.