Málstofan verður haldin í Kviku, Húsi atvinnulífsins, að Borgartúni 35 fimmtudaginn 3. nóvember næstkomandi.
Málstofan hefst kl. 10:30 og er áætlað að hún standi til kl. 15:00. Boðið verður upp á léttar veitingar.
Alls verða átta erindi haldin af hinum ýmsu fallbyssum í sjávarútvegsmálum.
Sjá yfirlit yfir einstök erindi og frekari upplýsingar á vefsvæði Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.
Málstofustjóri verður Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar.