Gagnrýna fiskvinnslufyrirtækin

Stjórn Framsýnar kom saman til fundar í gærkvöldi til að ræða stöðuna, það er verkfall sjómanna og ákvörðun sumra fiskvinnslufyrirtækja að senda starfsfólk heim á atvinnuleysisbætur. 

Í tilkynningu frá Framsýn kemur fram að dæmi séu um að fyrirtæki í fiskvinnslu fullyrði að það sé hagstæðara fyrir starfsfólk að vera á atvinnuleysisbótum í stað þess að vera á kauptryggingu hjá fyrirtækjunum sem er fásinna.

„Sé það rétt eins og ákveðin fyrirtæki hafa haldið fram er það ámælisvert fyrir verkalýðshreyfinguna og Samtök atvinnulífsins að það sé hagstæðara að vera á atvinnuleysisbótum en að vera á launaskrá hjá viðkomandi fyrirtækjum,“ segir í tilkynningu frá Framsýn.

Ályktun

Um verkfall sjómanna og lokun fiskvinnslufyrirtækja

„Framsýn, stéttarfélag hvetur forystu Sjómannasambands Íslands og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) að setjast þegar niður við samningaborðið með það að markmiði að ná fram ásættanlegum kjarasamningi fyrir sjómenn.

Sanngjarnar kröfur sjómanna eiga ekki að þurfa að standa í vegi fyrir því að gengið verði frá nýjum kjarasamningi. Það er mikill ábyrgðarhluti af hálfu SFS að spyrna við fótum og kenna gengi krónunnar um óánægju sjómanna með sín kjör, vandinn er mun stærri en það og endurspeglast í kröfugerð sjómanna.

Framsýn gagnrýnir þau fiskvinnslufyrirtæki sem beina starfsfólki á atvinnuleysisbætur vegna verkfalls sjómanna, fyrirtæki sem bera því jafnvel við og alhæfa að starfsfólkið sé betur komið á atvinnuleysisbótum en á kauptryggingu hjá fiskvinnslufyrirtækjum. Fyrirtæki sem skilað hafa sögulegum rekstrarhagnaði.

Framsýn hvetur fiskvinnslufyrirtæki til að halda starfsmönnum á launaskrá í verkfalli sjómanna og virða þannig sjálfsögð réttindi vinnandi fólks.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »