Engeyin nálgast

Engeyin nýja er þrisvar sinnum stærri en ísfisktogarinn Ásbjörn.
Engeyin nýja er þrisvar sinnum stærri en ísfisktogarinn Ásbjörn. mbl.is/HB Grandi

Engey RE, nýsmíði HB Granda, var afhent félaginu formlega nú á dögunum og er nú á harðakani til heimahafnar.

Hinn nýi ísfisktogari var hálfnaður á siglingu sinni frá Tyrklandi til Íslands er rætt var við Friðleif Einarsson skipstjóra. Engey var þá að ljúka við að fara um Gíbraltarsund og fram undan var því Atlantshafið og vikulöng sigling til Reykjavíkur.

„Það hefur allt gengið að óskum fram að þessu. Við höfum hreppt hressilegan mótvind en í dag höfum við verið á lensi. Hér er ótrúlega mikil skipaumferð en allt gengur vel ef maður fylgir settum reglum,“ segir Friðleifur en hann siglir Engey heim ásamt sex öðrum skipverjum. 15 manns verða svo í áhöfninni þegar heim er komið eða jafnmargir og eru á Ásbirni RE.

Stefnislagið sérstakt en venst vel

Að sögn Friðleifs eru það gríðarleg viðbrigði að taka við þessu nýja skipi og allur aðbúnaður og annað sé miklu betra en hann hefur átt að venjast.

„Þetta er sennilega allt að því þrisvar sinnum stærra skip en Ásbjörn sem ég hef verið með. Bara breidd skipsins er fjórum metrum meiri en á Ásbirni. Stefnislagið er óneitanlega sérstakt en það venst mjög vel. Því er ætlað að kljúfa ölduna betur og þá einkum í mótvindi. Þá eru olíutankarnir mun stærri og við verðum mest með mánaðarbirgðir af olíu, sem svarar til fjögurra veiðiferða.“

Góð veðurspá er fyrir næstu tvo dagana en Friðleifur segir að það muni koma honum verulega á óvart á þessum árstíma ef góða veðrið muni haldast alla leiðina til Íslands.

„Við fáum örugglega brælu á okkur á leiðinni. Svæðið milli Írlands og Íslands getur verið sannkallað veðravíti um hávetur en við erum við öllu búnir,“ segir Friðleifur Einarsson, sem vonast til að koma til hafnar í Reykjavík í kringum 25. janúar næstkomandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »