Betra að skrifa undir en fá á sig lög

Konráð kynnti samninginn í Hofi í dag.
Konráð kynnti samninginn í Hofi í dag. Ljósmynd/Þorgeir Baldursson

„Við náðum góðu spjalli en ég var með 150 manna fund,“ segir Kon­ráð Þor­steinn Al­freðsson, vara­formaður Sjó­manna­sam­bands Íslands, í samtali við mbl.is. Hann kynnti kjarasamning sjómanna á fundi hjá Sjómannafélagi Eyjafjarðar í Hofi nú síðdegis.

Konráð kynnti mönnum efni samningsins og opnaði kjörfund, þar sem meirihluti greiddi atkvæði. Sumir vilja meiri tíma en ég er með opinn kjörfund á morgun frá 10 til 15,“ segir Konráð en sjómannafélögin halda hvert sína atkvæðagreiðslu nú eftir að skrifað var undir kjarasamning sjómanna fyrir tæpum sólarhring. Atkvæðagreiðslu lýkur á flestum stöðum um miðjan dag á morgun en talningu lýkur klukkan átta annað kvöld.

Sjómenn greiða atkvæði.
Sjómenn greiða atkvæði. Ljósmynd/Þorgeir Baldursson

„Mér fannst mjög gott hljóð í mínum mönnum. Þeir spurðu margra spurninga og spurðu ýmsir um sín hjartans mál; hvað ekki náðist sem þeim fannst að hefði átt að vera þarna. Þegar upp er staðið met ég það þannig að það hafi verið mikill meirihluti sem var ánægður og feginn að það væri kominn samningur og myndu vinna næstu rúmlega tvö ár með kjarasamning sem þeir hefðu skrifað undir en ekki fengið á sig lög,“ segir Konráð en hann segir það umtalsvert betri tilfinningu að skrifa undir samning heldur en að fá sett á sig lög.

„Tilfinningin að vera með lög á sér er slæm. Ég hef upplifað það og það er slæmt,“ segir Konráð. Að hans mati voru fundargestir ekki reiðir þó að einn hafi tekið skemmtilega til orða við hann.

„Alls ekki. Það er einn sem sagði „mig langar til að flengja þig“ en ég veit ekki af hverju hann sagði það. Við hlógum að þessu og hann sagðist þurfa meiri tíma. Þetta er fínt, menn eiga að ræða málin og hugsa.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 1.304 kg
Ýsa 696 kg
Steinbítur 171 kg
Keila 77 kg
Samtals 2.248 kg
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 1.304 kg
Ýsa 696 kg
Steinbítur 171 kg
Keila 77 kg
Samtals 2.248 kg
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg

Skoða allar landanir »