Skaginn 3x hlýtur Nýsköpunarverðlaun Íslands

Ingólfur Árnason, framkvæmdastjóri Skagans, veitti verðlaununum viðtöku úr hendi Þórdísar …
Ingólfur Árnason, framkvæmdastjóri Skagans, veitti verðlaununum viðtöku úr hendi Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Ljósmynd/Íslandsstofa

Skaginn 3x hf. hlaut Nýsköpunarverðlaun Íslands 2017 sem afhent voru á Nýsköpunarþingi í morgun.

„Skaginn hefur undanfarin ár verið leiðandi fyrirtæki í nýsköpun í matvælaiðnaðinum og þá sérstaklega í sjávariðnaði. Fyrirtækið byggir á sterkum þekkingargrunni og virku samstarfi við önnur fyrirtæki og rannsóknastofnanir.

Undanfarin ár hefur fyrirtækið náð góðri fótfestu á markaði sem hefur skapast vegna nýrra lausna sem fyrirtækið hefur sett á markað. Lausnir Skagans 3x byggja á mikilli sjálfvirkni með áherslu á bætt gæði og nýtingu afurðar auk þess sem hagkvæmar og umhverfisvænar kæli-, pökkunar- og flutningslausnir eru hafðar að leiðarljósi. Hjá fyrirtækinu starfa um 90 manns við hönnun, þróun og framleiðslu.

Það er mat dómnefndar að Skaginn 3x sé fyrirtæki sem hefur sýnt árangur á markaði með framúrskarandi nýsköpun að leiðarljósi og er líklegt til að halda áfram á þeirri braut í framtíðinni,“ segir í fréttatilkynningu.

Nýsköpunarverðlaun Íslands eru veitt af Rannís, Íslandsstofu, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins, til fyrirtækja sem þykja hafa skarað fram úr í þróun nýrrar vöru eða þjónustu, sem byggð er á rannsóknar- og nýsköpunarstarfi og náð hefur árangri á markaði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »