Tilkynnti um stofnun Knarr Maritime

Alfreð Túliníus, framkvæmdastjóri Nautic, Ingólfur Árnason framkvæmdatjóri Skaginn 3X, Þorgerður …
Alfreð Túliníus, framkvæmdastjóri Nautic, Ingólfur Árnason framkvæmdatjóri Skaginn 3X, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegsráðherra, Finnbogi Jónsson, stjórnarformaður Knarr Maritime, og Haraldur Árnason, framkvæmdatjóri Knarr Maritime, brostu breitt þegar tilkynnt var um stofnun Knarr Maritime á sjávarútvegssýningunni í Brussel í dag. Aðsend mynd

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegsráðherra tilkynnti í dag um stofnun nýs markaðsfyrirtækis á sviði skipalausna, Knarr Maritime, á alþjóðlegu sjávarútvegssýningunni, sem nú stendur sem hæst í Brussel. Að hinu nýja  fyrirtæki standa íslensku fyrirtækin Skaginn 3X, Nautic ehf. , Kælismiðjan Frost ehf., Brimrún ehf., Naust Marine ehf., og Verkfræðistofan Skipatækni ehf. sem öll hafa á undanförnum árum komið að hönnun, þróun, smíði og sölu á búnaði og skipum til veiða og vinnslu á sjávarfangi.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Þar er vitnað í Þorgerði sem segir það afar ánægjulegt að hafa komið að því að ýta þessu verkefni úr vör. Hún segir hugvit og frumkvæði íslenskra hátæknifyrirtæki hafa skipað þeim og sjávarútvegi okkar í fremstu röð og það skref sem stigið var í dag staðfesti það frumkvæði og forystu.

Þrátt fyrir að fyrirtækin sex hafi í dag stofnað sameiginlegt markaðsfyrirtæki hafa þau átt í talsverðu samstarfi á undanförnum árum og má þar nefna samstarf við hönnun, smíði og uppsetningu vinnslustöðva innanlands og utan auk þess sem þau taka flest svipaðan þátt í smíði þeirra skuttogara sem hafa verið og eru nú í smíðum fyrir íslensk sjávarútvegfyrirtæki. Starfsemi Knarr Maritime byggir því í raun á áratuga reynslu og þekkingu.

„Íslenskur sjávarútvegur og iðnaður hafa ávallt verið í fararbroddi hvað þekkingu og tækni varðar og samstarf þessara fyrirtækja getur styrkt þá stöðu enn frekar,“ er haft eftir Finnboga Jónssyni, sem er stjórnarformaður hins nýja fyrirtækis. 

Fyrirtækin sem að Knarr Maritime standa munu hvert um sig koma að hönnun og smíði á afmörkuðum þáttum sem ýmist verða smíðaðir af fyrirtækjunum sjálfum eða undirverktökum þeirra. Smíði aðalvéla og skipsskrokksins sjálfs verður síðan ákveðin í nánu samstarfi við kaupendur skipanna hverju sinni. Þannig verður hægt að bjóða fiskiskip af ýmsum stærðum og gerðum allt eftir óskum hvers kaupanda fyrir sig. „Viðskiptavinir okkar geta á einum stað nálgast allt það besta við fiskveiðar sem íslendingar hafa fram að færa hvort heldur vinnslan fer fram um borð í veiðiskipi eða í landi,“ er haft eftir Haraldi Árnasyni, nýráðnum framkvæmdastjóra Knarr Maritime, en hann hefur um áratugaskeið stjórnað ýmsum fyrirtækjum Hampiðjunnar víðs vegar um heim.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 392,95 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 201,29 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,74 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,42 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Petra ÓF 88 Grásleppunet
Grásleppa 1.572 kg
Þorskur 81 kg
Skarkoli 35 kg
Steinbítur 11 kg
Ufsi 5 kg
Djúpkarfi 1 kg
Samtals 1.705 kg
26.4.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet
Grásleppa 546 kg
Samtals 546 kg
26.4.24 Auður HU 94 Grásleppunet
Grásleppa 1.519 kg
Þorskur 196 kg
Steinbítur 28 kg
Rauðmagi 25 kg
Skarkoli 4 kg
Þykkvalúra 1 kg
Samtals 1.773 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 392,95 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 201,29 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,74 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,42 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Petra ÓF 88 Grásleppunet
Grásleppa 1.572 kg
Þorskur 81 kg
Skarkoli 35 kg
Steinbítur 11 kg
Ufsi 5 kg
Djúpkarfi 1 kg
Samtals 1.705 kg
26.4.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet
Grásleppa 546 kg
Samtals 546 kg
26.4.24 Auður HU 94 Grásleppunet
Grásleppa 1.519 kg
Þorskur 196 kg
Steinbítur 28 kg
Rauðmagi 25 kg
Skarkoli 4 kg
Þykkvalúra 1 kg
Samtals 1.773 kg

Skoða allar landanir »