Vilja auka aflaheimildir í strandveiðum

Á strandveiðum, mynd úr safni.
Á strandveiðum, mynd úr safni. mbl.is/Heiðar Kristjánsson

Stjórn Landssambands smábátaeigenda hefur farið þess á leitir við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur sjávarútvegsráðherra að aflaviðmiðun til strandveiða verði hækkuð þannig ekki komi til stöðvunar veiða. 

„Strandveiðar 2017 hafa ekki uppfyllt þær væntingar sem þátttakendur gerðu til þeirra,“ segir í ályktun sem samþykkt var á fundi stjórnar LS fyrir helgi. „Þrátt fyrir að ellefu prósent færri stundi veiðarnar í ár en í fyrra, fækkun um 72 báta, og því meira sem kemur í hlut hvers og eins er aflaverðmæti nú fjórðungi lægra en í fyrra. Hrun fiskverðs og ónægar veiðiheimildir eru helstu orsakavaldarnir.“

Í ályktuninni bendir stjórnin á að vegna vinnustöðvunar á fiskveiðiárinu verður þorskafli nokkuð undir því sem aflaregla gerir ráð fyrir að veitt verði, 244 þúsund tonn. „Samkvæmt tölum Fiskistofu var þorskafli á fiskveiðiárinu þann 21. júlí 212 þúsund tonn, sem er um 17 þúsund tonnum minna en á sama tíma á fiskveiðiárinu 2015/2016,“ segir þar.

Örn Pálsson, framkvæmdastjóri LS, segir ekkert því til fyrirstöðu að ráðherra hækki aflaviðmiðunina. „Þetta er ekkert sem skaðar þorskstofninn og það eru til nægar heimildir ráðherra til að gera þetta,“ segir Örn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 30.4.24 394,28 kr/kg
Þorskur, slægður 30.4.24 432,85 kr/kg
Ýsa, óslægð 30.4.24 189,34 kr/kg
Ýsa, slægð 30.4.24 117,75 kr/kg
Ufsi, óslægður 30.4.24 169,98 kr/kg
Ufsi, slægður 30.4.24 175,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 30.4.24 143,59 kr/kg
Litli karfi 28.4.24 7,72 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

30.4.24 Straumey EA 50 Línutrekt
Þorskur 4.291 kg
Ýsa 153 kg
Steinbítur 39 kg
Samtals 4.483 kg
30.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Skarkoli 1.943 kg
Ufsi 328 kg
Þykkvalúra 189 kg
Karfi 80 kg
Ýsa 57 kg
Steinbítur 31 kg
Sandkoli 15 kg
Samtals 2.643 kg
30.4.24 Bibbi Jónsson ÍS 65 Grásleppunet
Grásleppa 4.085 kg
Samtals 4.085 kg
30.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 611 kg
Þorskur 308 kg
Samtals 919 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 30.4.24 394,28 kr/kg
Þorskur, slægður 30.4.24 432,85 kr/kg
Ýsa, óslægð 30.4.24 189,34 kr/kg
Ýsa, slægð 30.4.24 117,75 kr/kg
Ufsi, óslægður 30.4.24 169,98 kr/kg
Ufsi, slægður 30.4.24 175,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 30.4.24 143,59 kr/kg
Litli karfi 28.4.24 7,72 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

30.4.24 Straumey EA 50 Línutrekt
Þorskur 4.291 kg
Ýsa 153 kg
Steinbítur 39 kg
Samtals 4.483 kg
30.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Skarkoli 1.943 kg
Ufsi 328 kg
Þykkvalúra 189 kg
Karfi 80 kg
Ýsa 57 kg
Steinbítur 31 kg
Sandkoli 15 kg
Samtals 2.643 kg
30.4.24 Bibbi Jónsson ÍS 65 Grásleppunet
Grásleppa 4.085 kg
Samtals 4.085 kg
30.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 611 kg
Þorskur 308 kg
Samtals 919 kg

Skoða allar landanir »