Sérstök áhersla er lögð á fræðslumál í nýrri starfsmannastefnu Síldarvinnslunnar. Fræðsluáætlunin er gerð til þriggja ára og eru markmiðin að auka starfsánægju og víkka sjóndeildarhring, auka færni og hæfni starfsmanna, auka öryggi á vinnustað, stuðla að bættri aðlögun erlendra starfsmanna og auka samheldni innan fyrirtækisins.
Þetta kemur fram í frétt á vef Síldarvinnslunnar en fyrirtækið gerði könnun á fræðsluþörf innan fyrirtækisins og byggir fræðsluáætlunin m.a. á niðurstöðum þeirrar könnunar. Austurbrú hefur yfirumsjón með gerð áætlunarinnar en sérstakur stýrihópur verkefnisins var skipaður starfsmönnum Síldarvinnslunnar.
Starfsmönnum í öllum deildum fyrirtækisins verður boðið upp á námskeið og mun framboð námskeiða í hverri deild taka mið af óskum starfsmanna. Árlega er síðan gert ráð fyrir að kanna þátttöku og virkni starfsmannanna í fræðslustarfinu auk þess sem starfsánægja verður mæld.
Hákon Ernuson starfsmannastjóri segir sum námskeiðanna verða skyldunámskeið en önnur valkvæð. Ýmis námskeið verða sérhæfð fyrir ákveðna hópa eins og t.d. námskeið fyrir rafvirkja eða Baader-menn. Á vef Síldarvinnslunnar segir að niðurstöður könnunarinnar bendi til að starfsmennirnir séu tilbúnir að mæta á vinnutengd námskeið og um helmingur starfsmanna hafi að auki áhuga á tómstundanámskeiðum.
Mest þörf er á námskeiðum í skyndihjálp, samskiptum, kjaramálum, öryggismálum og sjálfsstyrkingu.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 25.4.24 | 426,40 kr/kg |
Þorskur, slægður | 25.4.24 | 527,13 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 25.4.24 | 191,25 kr/kg |
Ýsa, slægð | 25.4.24 | 150,71 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 25.4.24 | 109,92 kr/kg |
Ufsi, slægður | 25.4.24 | 172,26 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 25.4.24 | 163,01 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 7.439 kg |
Ýsa | 738 kg |
Steinbítur | 48 kg |
Keila | 21 kg |
Karfi | 12 kg |
Samtals | 8.258 kg |
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 3.357 kg |
Þorskur | 383 kg |
Ýsa | 23 kg |
Samtals | 3.763 kg |
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 3.836 kg |
Samtals | 3.836 kg |
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.853 kg |
Þorskur | 296 kg |
Skarkoli | 100 kg |
Samtals | 2.249 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 25.4.24 | 426,40 kr/kg |
Þorskur, slægður | 25.4.24 | 527,13 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 25.4.24 | 191,25 kr/kg |
Ýsa, slægð | 25.4.24 | 150,71 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 25.4.24 | 109,92 kr/kg |
Ufsi, slægður | 25.4.24 | 172,26 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 25.4.24 | 163,01 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 7.439 kg |
Ýsa | 738 kg |
Steinbítur | 48 kg |
Keila | 21 kg |
Karfi | 12 kg |
Samtals | 8.258 kg |
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 3.357 kg |
Þorskur | 383 kg |
Ýsa | 23 kg |
Samtals | 3.763 kg |
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 3.836 kg |
Samtals | 3.836 kg |
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.853 kg |
Þorskur | 296 kg |
Skarkoli | 100 kg |
Samtals | 2.249 kg |