Vinnsla kolmunna hafin hjá HB Granda

Frá kolmunnaveiðum á Víkingi AK. Mynd úr safni.
Frá kolmunnaveiðum á Víkingi AK. Mynd úr safni. Ljósmynd/Börkur Kjartansson

„Skipin komu inn vegna brælu á miðunum og slæms veðurútlits og voru því með minni afla en ella.“ Þetta segir Sveinbjörn Sigmundsson, verksmiðjustjóri hjá HB Granda á Vopnafirði, en vinnsla á kolmunna er hafin þar eftir að Venus NS og Víkingur AK komu til hafnar með um 800 tonna afla.

Að sögn Sveinbjörns er um að ræða hið besta hráefni, feitan og fallegan fisk. Á hann von á því miðað við kvótastöðuna að kolmunnaafli muni duga verksmiðjunni vel fram í næsta mánuð.

„Framhaldið veltur auðvitað mest á því að kolmunninn gefi sig til og á tíðarfarinu. Mér skilst að vertíðin hafi byrjað vel út af Seyðisfirði en síðan hafi aflinn dregist saman. Það má vel vera að fara þurfi dýpra og lengra eftir kolmunnanum en það kemur í ljós á næstu dögum og vikum,“ er haft eftir Sveinbirni á vef HB Granda.

Reiknar hann með því að lokið verði við vinnslu á aflanum í nótt. Venus og Víkingur eru nú á miðunum en bæði skipin fóru frá Vopnafirði í gær.

Það sem af er ári hefur verksmiðjan á Vopnafirði alls unnið úr tæplega 69 þúsund tonnum af hráefni og hefur starfsemin gengið vel. Verksmiðjan nýtir alfarið umframrafmagnsorku til framleiðslunnar og hefur framboð raforku verið það tryggt að ekki hefur þurft að grípa til þess að keyra verksmiðjuna með olíu, að því er fram kemur á vef útgerðarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 426,40 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,25 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 110,72 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 163,02 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Hólmi ÞH 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.279 kg
Skarkoli 40 kg
Samtals 3.319 kg
25.4.24 Þrasi VE 20 Handfæri
Þorskur 1.084 kg
Karfi 1 kg
Samtals 1.085 kg
25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 426,40 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,25 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 110,72 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 163,02 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Hólmi ÞH 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.279 kg
Skarkoli 40 kg
Samtals 3.319 kg
25.4.24 Þrasi VE 20 Handfæri
Þorskur 1.084 kg
Karfi 1 kg
Samtals 1.085 kg
25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg

Skoða allar landanir »