Feiknaleg veiði þegar hafísinn hopaði

Sturlaugur H. Böðvarsson AK á siglingu.
Sturlaugur H. Böðvarsson AK á siglingu. Ljósmynd/HB Grandi

„Ætli veiðinni sé ekki best lýst með því að segja að hún hafi verið upp og ofan. Hafís og brælur voru að gera okkur lífið leitt á tímabili en ef vindáttin var rétt og hafísinn hopaði þá var stundum feiknaleg veiði,“ segir Eiríkur Jónsson, skipstjóri á Sturlaugi H. Böðvarssyni AK, en togarinn kom til hafnar í Reykjavík um miðnætti aðfaranótt þriðjudags eftir veiðiferð á Vestfjarðamið.

„Við byrjuðum veiðiferðina á að dóla okkur austur á Strandagrunn í brælu en þar var róleg veiði. Við fórum því á Þverálshornið og Halann en þar var þá erfitt að athafna sig vegna hafíss. Þannig var ástandið reyndar í öllum kantinum og það var ekki fyrr en við komum vestur undir Víkurál að við fundum lítið svæði til að athafna okkur á. Þar var mjög góð þorskveiði en eftir því sem skipunum fjölgaði þá minnkaði veiðin,“ er haft eftir Eiríki á vef HB Granda en hann brá þá á það ráð að fara aftur norður eftir.

„Við vorum komnir aftur norður síðdegis á laugardag og þá gerði norðaustangolu. Við það tók hafísinn að hörfa. Þá komumst við í Djúpkrókinn og þá um kvöldið og aðfaranótt sunnudagsins var mjög góð þorskveiði. Þetta var greinilega göngufiskur, sem við höfum verið að bíða eftir í vetur, því það vottaði fyrir hrognum og sviljum, og þótt það lóðaði ekki á loðnutorfur þá var þessi fiskur vel haldinn af loðnuáti.“

Áhöfnin á Sturlaugi er nú komin í jólafrí en ráðgert er að skipið fari í síðustu veiðiferð ársins á öðrum degi jóla. Í byrjun næsta árs flyst áhöfnin svo yfir á nýja ísfisktogarann Akurey AK.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »