Skaginn hf., Þorgeir & Ellert hf. og 3X Technology ehf. hafa ákveðið að styrkja Íþróttabandalag Akraness og Héraðssamband Vestfirðinga. Segir í tilkynningu að með þessu vilji fyrirtækin stuðla að meiri gæðum og faglegri vinnu við barna- og unglingastarf íþróttahreyfinga í heimabyggð.
„Við trúum á gildi íþróttaiðkunar til forvarna og viljum gjarnan að stuðningurinn verði nýttur í þágu þess,“ segir í tilkynningunni, en stuðningurinn er veittur í nafni starfsmanna fyrirtækjanna og er ætlað að bæta barna- og unglingastarf íþróttahreyfinganna árið 2018.
Sérstakir bankareikningar stofnaðir
Fram kemur að stofnaðir hafi verið sérstakir bankareikningar hjá Íslandsbanka, annars vegar á Akranesi og hins vegar á Ísafirði, sem eingöngu verði ætlaðir til stuðnings við barna- og unglingastarf íþróttahreyfinganna.
Skaginn og Þorgeir & Ellert styrkja Íþróttabandalag Akraness samtals að upphæð 3.000.000,- og hafa fyrirtækin greitt þá upphæð inn á bankareikning 0552-14-350180.
3X Technology styður Héraðssamband Vestfirðinga að upphæð 1.500.000,- og hefur fyrirtækið greitt þá upphæð inn á bankareikning 0556-14-400730.
Ekki ætlaður ákveðnum aðildarfélögum
„Stuðningurinn er ekki sérstaklega ætlaður ákveðnum aðildarfélögum innan íþróttahreyfinganna og munu forsvarsmenn hreyfinganna sjá um með hvaða hætti stuðningurinn, í þágu barna- og unglingastarfs í heimabyggð, verði nýttur,“ segir í tilkynningunni.
„Sérstaklega er tekið fram að stuðningurinn er einungis ætlaður sem viðbót við núverandi barna- og unglingastarf og ekki ætlaður til frekari fjárfestinga innan íþróttahreyfinganna. Fyrirtækin hvetja sem flesta, bæði einstaklinga og lögaðila, að leggja verkefninu lið og þannig styðja við börn og ungmenni í sinni heimabyggð.
Frjáls fjárframlög má leggja inn á eftirfarandi reikninga sem eingöngu eru ætlaðir til stuðnings við barna- og unglingastarf íþróttahreyfinganna: Íþróttabandalag Akraness, kt. 670169-2199 – reikningsnr. 0552-14-350180 Héraðssamband Vestfirðinga, kt. 490500-3160 – reikningsnr. 0556-14-400730.“