Ekki enn svarað erindi Samherja

Útvarpsstjóri segir að erindi Samherja muni vera svarað.
Útvarpsstjóri segir að erindi Samherja muni vera svarað. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stefán Eiríksson útvarpsstjóri segir að ekki sé búið að svara erindi Samherja frá í gær þar sem lögmaður Samherja fór fram á að skýrsla, sem notuð var sem aðalgagn í umfjöllun Kastljóss um Samherja árið 2012, verði afhent lögmanni fyrirtækisins. Lögmaður Samherja segir í bréfinu að afhendi RÚV ekki skýrsluna innan fimm daga muni málinu skotið til úrskurðarnefndar upplýsingalaga. Útvarpsstjóri segir að verið sé að undirbúa svar við erindi Samherja.

 „Við erum auðvitað bara að vanda okkur við þetta eins og í öllu öðru sem við tökum okkur fyrir hendur.“ Þetta sagði útvarpsstjóri í samtali við mbl.is í dag. Hann sagði jafnframt að erindi lögmanns Samherja verði svarað en að það svar sé bara í vinnslu. „Þetta eru bara gögn frá stjórnvaldi sem um ræðir og þessi gögn eru alveg til, það fer ekkert á milli mála.“

Samherji birti á dögunum myndband þar sem Helgi Seljan, fréttamaður RÚV, er sakaður um að hafa falsað umrædd gögn við gerð kastljósþáttar þar sem fjallað var um meint brot Samherja á gjaldeyrislögum.

Gögnin sem um ræðir komu frá Verðlagsstofu skiptaverðs og hefur sú stofnun staðfest að gögnin séu til. Þau hafi verið „excel-skjal“ en ekki eiginleg skýrsla.

Helgi Seljan hefur áður sagt að gögnin í málinu hafi verið birt áður. Þau hafi bæði verið sýnd í kastljósþætti þann 27. mars 2012 og einnig í myndbandi Samherja þar sem brot úr kastljósþættinum er sýnt. Þar bregður gögnunum fyrir. Þetta ítrekaði Stefán Eiríksson útvarpsstjóri í samtali við mbl.is í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 30.4.24 392,30 kr/kg
Þorskur, slægður 30.4.24 432,85 kr/kg
Ýsa, óslægð 30.4.24 189,09 kr/kg
Ýsa, slægð 30.4.24 117,75 kr/kg
Ufsi, óslægður 30.4.24 163,69 kr/kg
Ufsi, slægður 30.4.24 175,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 30.4.24 142,62 kr/kg
Litli karfi 28.4.24 7,72 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

1.5.24 Júlía Rán RE 747 Handfæri
Þorskur 727 kg
Ufsi 44 kg
Samtals 771 kg
1.5.24 Sæli BA 333 Lína
Hlýri 138 kg
Þorskur 103 kg
Ufsi 30 kg
Keila 29 kg
Ýsa 25 kg
Langa 14 kg
Karfi 10 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 353 kg
1.5.24 Fanney EA 82 Grásleppunet
Grásleppa 1.780 kg
Þorskur 562 kg
Skarkoli 156 kg
Steinbítur 38 kg
Ýsa 4 kg
Samtals 2.540 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 30.4.24 392,30 kr/kg
Þorskur, slægður 30.4.24 432,85 kr/kg
Ýsa, óslægð 30.4.24 189,09 kr/kg
Ýsa, slægð 30.4.24 117,75 kr/kg
Ufsi, óslægður 30.4.24 163,69 kr/kg
Ufsi, slægður 30.4.24 175,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 30.4.24 142,62 kr/kg
Litli karfi 28.4.24 7,72 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

1.5.24 Júlía Rán RE 747 Handfæri
Þorskur 727 kg
Ufsi 44 kg
Samtals 771 kg
1.5.24 Sæli BA 333 Lína
Hlýri 138 kg
Þorskur 103 kg
Ufsi 30 kg
Keila 29 kg
Ýsa 25 kg
Langa 14 kg
Karfi 10 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 353 kg
1.5.24 Fanney EA 82 Grásleppunet
Grásleppa 1.780 kg
Þorskur 562 kg
Skarkoli 156 kg
Steinbítur 38 kg
Ýsa 4 kg
Samtals 2.540 kg

Skoða allar landanir »