SR-vélaverkstæði hf

Framkvæmdastjóri SR Vélaverkstæðis hf Siglufirði

 SR-Vélaverkstæði hf. á Siglufirði óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra. Leitað er að einsktaklingi sem býr yfir drifkrafti, heilindum og lipurð í mannlegum samskiptum.

SR-Vélaverkstæði byggir á traustum grunni og hefur starfað óslitið frá árinu 1935. Meðal verkefna okkar má nefna hönnun og smíði á tækjum og búnaði í fiskiðnaði, smíði á sniglum úr ryðfríu stáli, auk margra annarra ólíkra og fjölbreyttra verkefna.

 

Menntunar-og hæfniskröfur:

  1. Menntun á sviði vélaverkfræði – eða véltæknifræði.
  2. Reynsla af stjórnun og rekstri.
  3. Reynsla af vinnu í Auto-Cad og tengdum hugbúnaði
  4. Reynsla af DK, verk- og bókhaldi.
  5. Góð íslensku- og enskukunnátta.
  6. Góð tölvukunnátta.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  1. Sala og tilboðsgerð – verkefnastýring því tengd
  2. Hönnunar- og teiknivinna.
  3. Kostnaðar-, gæða- og framvindueftirlit
  4. Þátttaka í teymisvinnu.

 

Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2024

 

Sett inn: 3. apr.

Framkvæmdastjóri SR Vélaverkstæðis hf Siglufirði

Skráð 3. apr.
Staðsetning Norðurland
Starfssvið Stjórnunarstörf
Starfshlutf. Fullt starf
Ums.frestur 30. apríl

Nýjustu störfin