Volt rafbíllinn kominn til Íslands

Aðsend mynd

Langdrægi rafbíllinn Chevrolet Volt er kominn til Íslands. Hann kemst um 60 km á rafhleðslunni einni saman og framleiðir auk þess eigin raforku sem lengir heildarökudrægi bílsins í allt að 500 km.

Að sögn forráðamanna Bílabúðar Benna, umboðsaðila Chevrolet á Íslandi, er Volt staðfesting á stöðu Chevrolet sem eins framsæknasta bílaframleiðanda heims. Segja þeir að stór orð hafi nú þegar verið höfð um Volt og hann hafi hlotið ótal verðlaun og viðurkenningar á mörkuðum bæði í Bandaríkjunum og Evrópu.

„Volt hefur verið á Bandaríkjamarkaði  í tvö ár og eigendurnir þar hafa sett hann á topp ánægjulistans bæði árin. Volt var einnig útnefndur Bíll ársins 2011 af bæði Automobile Magazine og fagritinu Motor Trend. Hann hefur jafnframt hlotið sæmdarheitið  „Umhverfisbíll ársins 2011“  hjá tímaritinu Green Car Journal.  Nýjasta afrekið er afgerandi sigur á bílasýningunni í Genf þar sem hann hlaut titilinn „Bíll ársins 2012“.  Dómnefndin var skipuð 59 leiðandi bílablaðamönnum frá 23 Evrópuríkjum.“

Chevrolet Volt verður frumsýndur gestum og gangandi laugardaginn 5. janúar, frá kl. 12 til 18 í Bílabúð Benna, Tangarhöfða 8.

mbl.is