Sat nakin undir stýri

Þessi hjólreiðadama hefur einnig verið nakin undir stýri
Þessi hjólreiðadama hefur einnig verið nakin undir stýri AFP

Svissnesk kona var bókstaflega gripin með allt niður um sig um helgina þegar lögregla stöðvaði hana nakta á bak við stýri bifreiðar.

Um reglubundið umferðareftirlit lögreglu var að ræða, en einn karlmaður var með henni í bílnum. Parið viðurkenndi fljótlega að hafa í flýti skipt um sæti þar sem maðurinn var ekki með ökuskírteini á sér. Hann hafði þá einnig verið tekinn fyrir akstur án ökuskírteinis deginum áður og vildu þau ekki að upp kæmist um hann í annað sinn á tveimur dögum.

Konan neitaði hins vegar að gefa skýringar á því hvers vegna hún væri nakin.

Maðurinn var ákærður fyrir akstur án ökuskírteinis og bifreið hans var gerð upptæk. Konan var hins vegar ekki ákærð fyrir athæfið.

mbl.is

Bloggað um fréttina