Ekið of hratt og stúlkurnar voru ekki í bílbeltum

Kirkjugarður
Kirkjugarður Mbl.is

Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur mikilvægt að ráðist verði í aðgerðir til að draga úr hraðakstri á Suðurlandsvegi milli Víkur og Kirkjubæjarklausturs.

Þetta kemur m.a. fram í skýrslu nefndarinnar um banaslys sem varð á Suðurlandsvegi við Meðallandsveg 4. ágúst 2013. Tvær stúlkur, 15 og 16 ára, létust í slysinu en þær voru ekki í öryggisbeltum.

Fólk í tveimur bílum var í samfloti frá Reykjavík austur að Jökulsárlóni. Veður var ágætt og akstursaðstæður góðar. Bílarnir óku á 100-120 km/klst. hraða. Leyfilegur hámarkshraði þarna er 90 km/klst. Vitni í hinum bílnum sögðu að skömmu fyrir slysið hefði bíllinn farið fram úr þeim á 130-140 km/klst. hraða og lent í lausamöl hægra megin í beinu framhaldi af framúrakstrinum. Ökumaðurinn reyndi að beina bílnum aftur upp á veginn en fór yfir veginn og lenti út af vinstra megin þar sem hann valt.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina