Ronaldo reyndi að hæfa bíl Buttons

Ronaldo og Button við myndatökurnar í dag.
Ronaldo og Button við myndatökurnar í dag.

Cristiano Ronaldo var ekki á fótboltavellinum í dag, heldur á kappakstursbraut þar sem hann og Jenson Button lögðu úi púkk.

Tilefnið var taka á auglýsinga- og kynningarmynd fyrir svissneska úraframleiðandann Tag Heuer.

Auglýsingaröðin er ófullgerð ennþá en Ronaldo hefur sett nokkur myndbrot frá tökunum inn á fésbókarsíðu sína.

Í upptökunum í dag var hlutverk Ronaldo að reyna að hæfa með knattskoti appelsínurauðan ofurbíl - frá McLaren að sjálfsögðu - sem Button ók í kleinuhringjum á malbikuðu æfingasvæði.

Ekki fer sögum af því hvernig til tókst; hvort Ronaldo hafi klárað dagskipanina eða verði að reyna aftur. Ætli myndskeiðið hér að neðan leiði sannleikann í ljós?:

mbl.is