Þar sem 250 Mini-bílar koma saman, þar er gaman: 55 ára afmæli Mini Cooper fagnað

Það er kunnara en frá þurfi að segja að Mini Cooper á sér sæg harðra aðdáenda um heim allan.

Í síðasta mánuði tóku Mini-eigendur á Filippsseyjum sig til og héldu upp á 55 ára afmæli Mini-bílsins í almenningsgarði í úthverfi höfuðborgarinnar Manila.

Um 250 bílar af Mini-gerð komu saman við þetta tækifæri og er óhætt að segja að útfærslurnar voru nánast jafnmargar og bílarnir á staðnum, allt frá rallbílum til limósínu-útfærslu.

Mini er, þegar allt kemur til alls, ekki endilega það sama og Mini. jonagnar@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina