Ford Focus besti notaði bíllinn

Ford Focus var valinn besti notaði bíll ársins 2014.
Ford Focus var valinn besti notaði bíll ársins 2014.

Öðru sinni á þremur árum hefur Ford hlotnast titillinn besti notaði bíll ársins í vali bílaritsins What Car?

Í ár varð Ford Focus fyrir valinu en í hitteðfyrra, 2012, féll heiðurinn í skot Ford Fiesta.

Fiestan fór ekki verðlaunalaus af hólmi því í ár valdi tímaritið hana sem besta notaða smábílinn. Hlaut bíllinn þá viðurkenningu einnig 2011 og 2012.

Til að hnykkja á vali Focus sem bíl ársins í flokki notaðra bíla var hann jafnframt í fjórða sinn á átta árum valinn besti notaði fjölskyldubíllinn.

Alls hlaut Ford fjóra titla í viðurkenningum What Car? fyrir notaða bíla í ár. Hefur Ford hlotið að minnsta kosti ein verðlaun í vali bílaritsins hvert síðastliðinna sjö ára.

mbl.is