Margar frumsýningar nýrra mótorhjóla

Framleiðandi Acrapovic pústkerfanna vakti óskipta athygli fyrir nýstárlegan sýningarbás sinn …
Framleiðandi Acrapovic pústkerfanna vakti óskipta athygli fyrir nýstárlegan sýningarbás sinn á Intermot mótorhjólasýningunni í Köln.

Rétt eins og bílasýningar trekkja að áhugamenn um víða veröld lætur áhugafólk um mótorhjól sig ekki vanta á mótorhjólasýningarnar.

Mótorhjólasýningin í Köln kallast Intermot og er orðin árlegur viðburður sem markar flest það nýjasta sem á boðstólum er í mótorhjólageiranum ásamt EICMA sýningunnni í Mílanó sem haldin er mánuði seinna. Talsvert var um frumsýningar að þessu sinni og þá sérstaklega hjá japönsku framleiðendunum, þótt að þeir evrópsku hafi einnig verið duglegir við hituna.

300 hestafla keppnishjól

Eitt af þeim hjólum sem vöktu mesta athygli bæði fyrir sýninguna og á henni sjálfri var Kawasaki Ninja H2 sem sýnt var í keppnisútgáfu sinni. Með forþjöppunni sem í því er, er það gefið upp 296 hestöfl og þótt hámarkshraði sé ekki gefinn upp er hann áætlaður nálægt 350 km hraða. Allt við hjólið kallar á hraða og aksturseiginleika og eflaust geta margir ekki beðið eftir að prófa gripinn. Grindin er af svokallaðri Trellis gerð og megnið af kápu hjólsins er úr koltrefjum. Eins og sjá má eru engin ljós á hjólinu enda götuútgáfunnar ekki að vænta fyrr en í næsta mánuði þegar hún verður frumsýnd á EICMA sýningunni í Mílanó. Þrátt fyrir allt aflið er afturgaffallinn aðeins einfaldur svo að sterkur hlýtur hann að vera. Hjólið er hannað í samvinnu við flugvéladeild Kawasaki enda má sjá litla vængi þar sem venjulega eru speglar, en þeir eiga að bæta aksturseiginleika hjólsins. Kawasaki lét ekki þar við sitja og frumsýndi nýja gerð Versys 650 hjólsins auk þess að sýna nýtt útlit Versys 1000. 650 hjólið fær meira afl og stærri bensíntank og framrúðu.

Honda lítt áberandi

Lítið var að gerast hjá Honda en frá Honda kemur þó nýr VFR800X Crossrunner sem fær meira afl, nýrra útlit og meiri búnað eins og spólvörn, díóðuljós og upphituð handföng. Honda frumsýndi einnig nýjan skúter sem heitir Forza 125 og er sá öflugasti í þessum flokki. Þótt öll 125 hjól séu miðuð við 15 hestöfl á þetta hjól að skila mestu upptaki og hámarkshraða í flokknum.

Yamaha með tilraunahjól

Meðal þess sem vakti mesta athygli á bás Yamaha var GEN01 tilraunahjólið. Þar er um að ræða alvöru mótorhjól með tvöföldu framdekki. Dekkin eru stór og fjöðrunin löng og á hjólið að ráða jafnt við torfærur sem malbik. Einnig sýndi Yamaha tvö ný XJR1300, með og án vindkúpu en þau voru endurhönnuð með þátttöku aðila sem venjulega sérhæfa sig í breytingum mótorhjóla, Keino og Deus Ex Machina. Að auki var sýnd ný útgáfa MT-07 í svokallaðri stöntútgáfu. Hægt er að fá hjólið með sérstökum verndarbúnaði líkt og stönthjól nota og er útlitið fært í þann stíl.

Rafknúið KTM hjól

Ólíkt því sem venjulega er á döfinni hjá KTM frumsýndi austurríski framleiðandinn að þessu sinni rafknúið mótorhjól. Um er að ræða Freeride E-SM sem stendur fyrir SuperMoto og er götuútgáfa af torfæruhjóli. Rafgeymirinn er 300 volta og rafmótorinn skilar 21,4 hestöflum. Það þýðir að það er löglegt fyrir flokk A1 í ökuskírteini, en rafhjól mega skila meira afli en bensínhjól í þeirri flokkun. Hjólið er aðeins 106 kíló og ætti því að skila sér vel áfram í upptakinu. KTM sýndi einnig í fyrsta skipti KTM 1290 Super Adventure sem aðeins hafði verið sýnt á myndum hingað til. Vélin er nú 1.301 rsm og skilar 160 hestöflum. Vindkápan er endurhönnuð og upphituð handföng og sæti eru staðalbúnaður. Einnig verður hægt að fá hjólið með svokölluðu brekkuviðnámi sem aukabúnað.

Suzuki með tvö ný hjól

Suzuki frumsýndi tvö alveg ný hjól, nýtt V-Strom 650 og GSX-S1000. V-Strom 650 fær nú sama útlit og gogg og 1000 hjólið, teinafelgur fyrir meiri torfærueiginleika og meiri búnað eins og harðar áltöskur. S1000 hjólið var frumsýnt í tveimur útgáfum, S1000 sem er nakin útgáfa og S1000F sem er með lítilli vindkápu. Bæði hjólin eru 155 hestöfl og fást með spólvörn með þremur akstursstillingum. Frá Suzuki kom svo aðeins uppfærsla af gamla GSX-R1000 hjólinu og þurfum við að bíða fram á næsta ár eftir nýju hjóli úr þeirri deild. Hjólið er þó betur búið og nú með ABS sem staðalbúnað en hjólið skilar 182 hestöflum. Önnur hjól sem Suzuki frumsýndi voru nýtt útlit á Bandit 1250 S og ný gerð Inazuma 250 F.

Þrjú alveg ný BMW

BMW frumsýndi þrjú ný hjól, R1200RS, R1200R og S1000RR. Ný útgáfa S1000RR var aðalnúmer BMW og ofurhjólið skilar nú 199 hestöflum í götuútgáfu sinni og hefur lést um 5 kíló, niður í 204 kíló með fullan tank af bensíni. Vélin er sú sama í grunninn en efsti hluti hennar hefur verið endurhannaður. Pústkerfið er alveg nýtt og þótt það virki fyrirferðameira léttir það hjólið um þrjú kíló. Nýja hjólið fær spólvarnarpakkann úr HP4 hjólinu ásamt tölustýrðri fjöðrun og flýtiskipti. Endurkoma RS hjólsins vakti verðskuldaða athygli og þá sér í lagi hjá aðdáendum BMW hjólanna, sem kallað hafa aftur á þessa gerð síðan að hún var lögð af árið 2005. Vélin er vatnskæld og sú sama og í GS hjólinu og skilar 125 hestöflum. Hjólið er búið spól- og skrikvörn sem staðalbúnaði, líkt og R1200R hjólið. Það er einnig með sömu vél en er með hlífalaust útlit og hefðbundið fjöðrunarkerfi í stað Telelever fjöðrunarinnar í RS hjólinu.

Nokkur ný ítölsk

Ducati frumsýndi hið margumtalaða Scrambler hjól á Intermot en framleiðandinn hafði verið duglegur að leka myndum sem sýndu hjólið að hluta fyrir sýninguna. Nýja hjólið er með gamaldags útliti Scrambler hjólanna frá sjöunda áratugnum og fæst í þremur útgáfum, Full Throttle, Classic og Urban Enduro. Vélin er sú sama og í Monster 796 og skilar 75 hestöflum í tiltölulega léttu hjóli. Meðal annarra ítalskra hjóla sem frumsýnd voru á sýningunni var nýtt Moto Guzzi V7 og Aprilia Caponord ferðahjólið.

njall@mbl.is

Ducati Scrambler hjólið fæst í þremur útgáfum en útlit þess …
Ducati Scrambler hjólið fæst í þremur útgáfum en útlit þess byggist á samskonar hjólum frá sjöunda áratugnum.
Nýtt BMW S1000RR er nú öflugra en samt fimm kílóum …
Nýtt BMW S1000RR er nú öflugra en samt fimm kílóum léttara en áður og fær fullkomnasta skrikvarnarbúnað sem fáanlegur er í mótorhjól í dag.
Kawasaki frumsýndi rafdrifið framtíðarhjól sem kallast tilraunahjól-J en það hafði …
Kawasaki frumsýndi rafdrifið framtíðarhjól sem kallast tilraunahjól-J en það hafði áður verið sýnt sem tölvuteiknimynd á sýningunni í Tokyo í fyrra.
Triumph sýndi á bás sínum nýja gerð Bonneville hjólsins sem …
Triumph sýndi á bás sínum nýja gerð Bonneville hjólsins sem sækir í útlit gömlu T100 hjólanna, með minni brettum og ljósum. Ætla má, nú á tímum kaffireisera, afturhvarfs og nostalgíu, að hjólið verði eftir því vinsælt, enda fallegt.
Suzuki frumsýndi alveg nýtt V-Strom 650 með meiri torfærueiginleika.
Suzuki frumsýndi alveg nýtt V-Strom 650 með meiri torfærueiginleika.
Kawasaki mun frumsýna götuútgáfu H2 ofurhjólsins á EICMA sýningunni en …
Kawasaki mun frumsýna götuútgáfu H2 ofurhjólsins á EICMA sýningunni en keppnisútgáfan var frumsýnd á Intermot. Hún er hvorki meira né minna en tæp 300 hestöfl.
Yamaha GEN01 tilraunahjólið er með tveimur framdekkjum sem eykur grip …
Yamaha GEN01 tilraunahjólið er með tveimur framdekkjum sem eykur grip í akstri við hinar ýmsu aðstæður. Útlitið er óneitanlega býsna sérstakt.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: