Bíla fennti á kaf

Skóflur mundaðar í Boston.
Skóflur mundaðar í Boston. mbl.is/epa

Það eru ekki bara íslenskir ökumenn sem átt hafa erfiða tíma undanfarið vegna snjókomu og illviðris.

Snjó hefur kyngt niður víða í norðausurhéruðum Bandaríkjanna en meðfylgjandi mynd var tekin í suðurhverfi Bostonborgar í fyrradag í Massachusettsríki.

Snjókomunni hafði slotað og íbúar í óða önn að moka frá bílum sínum sem fennti í kaf.

mbl.is