Nýr DS5-bíll frá Citroën markar þáttaskil í sögu bílsmiðsins því með tilkomu hans er að fullu kominn til framkvæmda aðskilnaður DS-bílanna frá öðrum smíðisbílum Citroën.
Þannig er hvergi að finna nafn né merkingar Citroën á DS5-bílnum, heldur aðeins DS-táknmerkið. Um er að ræða alveg sjálfstæða bílalínu, til að byrja með DS3, DS4 og DS5.
Af þessu tilefni var hannaður alveg nýr framendi á bílinn miðað við hinn fyrri, og nýjar áherslur sjást í yfirbyggingunni sem ætlað er að einkenna DS-bílana.
Með DS-módelunum hyggst Citroën sækja inn á markað fyrir lúxusbíla. DS5-bíllinn verður aðaltromp franska bílsmiðsins á Genfarsýningunni í byrjun næsta mánaðar. Með honum hefst markaðssókn DS-línunnar af fullum krafti. Kemur hann á götuna fullskapaður í sumar.
Í framljósunum verða sameinuð Xenon- og díóðuljós sem ætlað er að líta út sem röð af demantsperlum. Hægt verður að velja á milli þriggja dísilvéla eða tveggja bensínvéla. Þær fyrrnefndu 120, 150 eða 180 hesta með innan við fjögurra lítra eyðslu á hundraðið. Bensínvélarnar verða 165 eða 210 hesta auk tvinnútgáfu sem kemst allt að 28,3 km á bensínlítrann.
agas@mbl.is