Sprækir fákar á sýningu Toyota

Hermirinn er búinn sömu stjórntækjum og raunverulegur GT86 sportbíll.
Hermirinn er búinn sömu stjórntækjum og raunverulegur GT86 sportbíll.

Í ár fagnar Toyota á Íslandi því að 50 ár eru liðin frá því fyrsti Toyotabíllinn var seldur á Íslandi. Af því tilefni er boðað til sýningar um helgina þar sem forvitnilegir bílar verða í forgrunni.

Næsti stórviðburður í tilefni afmælisins verður um helgina er viðurkenndir söluaðilar Toyota á Akureyri, Selfossi, í Reykjanesbæ og Kauptúni í Garðabæ bjóða til sýningar á morgun, laugardaginn 18. apríl, frá klukkan 12 – 16.

„Á sýningunni verða fjölmörg afmælistilboð Toyota kynnt auk þess sem ný leið við bílakaup, Toyota FLEX verður boðin í fyrsta sinn. Toyota FLEX er ný og þægileg leið til að fá sér bíl með 24 eða 36 mánaða samningi, lágri útborgun (frá 10%) og fjölbreyttum valkostum við enda samningstímans,“ segir í tilkynningu.

Hjá Toyota Kauptúni stendur sýningin í tvo daga, laugardag og sunnudag frá kl. 12 - 16. Þar verður fullkominn ökuhermir þar sem gestir geta sest undir stýri á GT86 sportbílnum og sýnt kunnáttu sína og ökuleikni. Hermirinn er búinn sömu stjórntækjum og raunverulegur GT86 og stendur á vökvadælum sem líkja eftir hreyfingum bílsins í brautinni.

THX Surround hljóðkerfi sér síðan til þess að upplifunin af hljóðinu í bílnum verður mjög raunveruleg.

Einnig verður á sýningunni hjá Toyota Kauptúni kappakstursbíllinn TS030 HYBRID sem hefur m.a. tekið þátt í Le Mans þolaksturskeppninni með góðum árangri.

TS030 keppnisbíll sem Toyota hefur m.a. teflt fram í Le …
TS030 keppnisbíll sem Toyota hefur m.a. teflt fram í Le Mans þolaksturskeppninni.
mbl.is