Næsti kafli rafbílasögunnar kynntur: EVEN frumsýnir Tesla Model S P85D

Model S P85D er nýjasta útspil rafbílaframleiðandans Tesla Motors.
Model S P85D er nýjasta útspil rafbílaframleiðandans Tesla Motors. mbl.is/Golli

Even rafbílar buðu til sumarveislu síðastliðinn laugardag í Smáralind. Tilefnið var öðrum þræði að kynna nýjasta útspil Tesla Motors, Tesla Model S P85D.

Frumsýning á P85d eru óneitanlega nokkur tíðindi fyrir bílaáhugafólk því rétt eins og Tesla Model S markaði ákveðin skil í framleiðslu rafbíla þá er hið nýja flaggskip vægast sagt áhugaverður kostur, ekki bara sem rafbíll heldur sem hraðskreiður bíll í það heila.

Geðveikishnappur á sínum stað

Bíllinn er um 700 hestöfl og þetta gríðarlega afl gerir honum kleift að fljúga upp í hundraðið á 3,2 sekúndum. Það þýðir að hröðunin upp í 100 km/klst. er 1,4 sekúndum meiri en í forveranum. Hefðbundin Model S er fráleitt dauf í akstri, heldur þvert á móti spræk eins og raketta. Það sem gerir Model S spennandi er hins vegar tekið og djassað upp enn frekar í P85D. Til marks um ásetning framleiðandans er hnappur í mælaborðinu með mismunandi stillingum hröðunar – eins og þekkt er í mörgum bílum þar sem oftast er að finna Eco, Normal og Sport. Tesla Model S P85D hefur aftur á móti stillingu sem heitir því lýsandi nafni „Insane Mode“ sem gæti útlagst sem „geðveikisstillingin“.

Það eru til myndbönd á Youtube sem sýna grunlausa farþega í framsæti bílsins fá að kynnast geðveikisstillingunni af eigin raun. Af viðbrögðum þeirra að dæma stendur umrædd stilling undir nafni því flestir fálma í ofboði eftir handfestu, skreppa saman í fósturstellinguna eða kveina á ökumanninn að stoppa. Þegar viðkomandi „fórnarlömb“ hafa náð áttum og andanum kemur iðulega krakkalegur glampi í augun á þeim og þau vilja fá aðra ferð.

Aukamótor um borð

Til að bæta við aflinu sem munar á P85D og eldri gerðum af Model S bættu þeir hjá Tesla við 230 hestafla rafmótor sem knýr framhjólin sem starfar í takt við 470 hestafla mótorinn sem drífur áfram afturhjólin. P85D er því fjórhjóladrifinn, hinn fyrsti af því tagi frá Tesla. Svipað fyrirkomulag verður fáanlegt sem valkostur í allar gerðir Model S héðan af og væntanlegur Model X-jeppi verður þá líka fjórhjóladrifinn. Hvort hann verður með geðveikisstillingu verður að koma í ljós. Þangað til mun geðveikistakkinn í mælaborði P85D sjá til þess að skjóta farþegum skelk í bringu.

jonagnar@mbl.is

Kunnugir þekkja hér vitaskuld merkið, risavaxinn snertiskjáinn og faglegan fráganginn.
Kunnugir þekkja hér vitaskuld merkið, risavaxinn snertiskjáinn og faglegan fráganginn. mbl.is/Golli
Model S P85D er fyrsti bíllinn frá Tesla með drifi …
Model S P85D er fyrsti bíllinn frá Tesla með drifi á öllum hjólum. mbl.is/Golli
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: