Tilþrif í torfæru á Egilsstöðum

Alltaf er mikið um tilþrif í torfærumótum og kapparnir keppast …
Alltaf er mikið um tilþrif í torfærumótum og kapparnir keppast við að sýna kúnstir sínar. mbl.is/Skáskot af youtube.com

Akstursíþróttaklúbburinn Start á Egilsstöðum hélt 3. umferð Íslandsmótsins í Torfæru á Egilsstöðum um helgina. Um eittþúsund manns voru á svæðinu og fylgdust með miklum tilþrifum torfærukappanna 16 sem kepptu í þremur flokkum.

Í sérútbúnaflokknum sigraði Snorri Þór Árnason á Kórdrengnum eftir öruggan og flottan akstur alla keppnina. Snorri hefur tekið góða forystu í Íslandsmótinu eftir þessa umferð en hann hefur unnið tvö mót og orðið í öðru sæti í því þriðja.

Helgi Garðarsson á Spiderman varð annar eftir tilþrifamikinn akstur. Þetta var hans fyrsta keppni en hann hefur verið aðstoðarmaður lengi hjá mörgum bílum frá Norðurlandi. Helgi hlaut einnig tilþrifaverðlaunin í þessum flokki.

Heimamaðurinn Kristmundur Dagsson á Tímaur endaði svo í þriðja sæti en hann velti m.a. tvisvar sinnum þennan dag, en var einn af fáum sem kláraði erfiða fimmtu braut.

Í sérútbúnagötubílaflokknum varð hlutskarpastur Bjarki Reynisson á Dýrinu. Hann tók mikla veltu í fjórðu braut en stóð engu að síður uppi sem siguvegari. Jón Vilberg Gunnarsson á Snáðanum endaði í öðru sæti í keppninni en hlaut tilþrifaveðlunin í flokknum. Aron Ingi Svansson á Zombie varð svo þriðji, en aðeins þessir þrír kepptu í þessum flokki.

Í götubílaflokknum sigraði Ívar Guðmundsson á Kölska en hann hefur unnið öll mótin þrjú til þessa og hefur góða forystu í baráttunni um Íslandsmeistaratitillinn. Eðvald Orri Guðmundsson á Pjakknum varð annar þrátt fyrir að velta einu sinni og verða fyrir öxulbroti.

Steingrímur Bjarnason á Strumpnum varð svo í þriðja sæti í keppninni en hann hlaut tilþrifaveðlaunin í þessum flokki.

Næsta torfærukeppni fer fram á Blönduósi 11. júlí í umsjá Torfæruklúbbs Suðurlands.

Í heildina urðu úrslitin á Egilsstöðum sem hér segir:

Sérútbúinn flokkur
1. Snorri Þór Árnason - Kórdrengurinn        1508 stig
2. Helgi Garðarsson - Spiderman                 1100 stig
3. Kristmundur Dagsson - Tímaur                  971 stig
4. Guðlaugur Sindri Helgason - Galdragulur   819 stig
5. Elmar Jón Guðmundsson - Heimasætan    715 stig
6. Guðni Grímsson - Kubbur                           700 stig
7. Valdimar Jón Sveinsson - Crash Hard        586 stig
8. Alexander Már Steinarsson - All-inn            525 stig
9. Haukur Viðar Einarsson - Taz                     320 stig
10. Ingólfur Guðvarðarson - Guttinn Reborn     60 stig

Sérútbúnir Götubílar
1. Bjarki Reynisson - Dýrið                1010 stig
2. Jón Vilberg Gunnarsson - Snáðinn  985 stig
3. Aron Ingi Svansson - Zombie           650 stig

Götubílaflokkur
1. Ívar Guðmundsson - Kölski                     1320 stig
2. Eðvald Orri Guðmundsson - Pjakkurinn  1070 stig
3. Steingrímur Bjarnason - Strumpurinn         850 stig

Á eftirfarandi myndskeiðum Jakobs Cecils Hafsteinssonar má sjá sigurvegara í hverjum flokki á ferð:

mbl.is