Glæsilegir gullaldarbílar til sýnis

Það vantaði ekki fegurðina á planið fyrir framan Hörpu á Menningarnótt síðastliðinn laugardag. Þá hélt Cadillac-klúbburinn veglega sýningu þar sem hver dýrgripurinn stóð við annan.

Hellidembu gerði á gesti borgarinnar á þessari stærstu útihátíð ársins hér á landi, ef svo má segja, en það dró ekki móðinn úr gestum og gangandi og fjölmargir virtu fyrir sér dýrðina við Hörpu undan skjólgóðum regnhlífum. Annars segja myndir vitaskuld meira en mörg orð og því rétt að láta hina dásamlegu dreka, Kádiljákana, hafa orðið. Njótið vel! jonagnar@mbl.is

Það vantaði ekki fegurðina á planið fyrir framan Hörpu á Menningarnótt síðastliðinn laugardag. Þá hélt Cadillac-klúbburinn veglega sýningu þar sem hver dýrgripurinn stóð við annan. Hellidembu gerði á gesti borgarinnar á þessari stærstu útihátíð ársins hér á landi, ef svo má segja, en það dró ekki móðinn úr gestum og gangandi og fjölmargir virtu fyrir sér dýrðina við Hörpu undan skjólgóðum regnhlífum. Annars segja myndir vitaskuld meira en mörg orð og því rétt að láta hina dásamlegu dreka, Kádiljákana, hafa orðið. Njótið vel!

jonagnar@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: