Innkalla loftpúða í Mitsubishi Lancer

Bílarnir verða innkallaðir og skipt verður um loftpúða farþegamegin.
Bílarnir verða innkallaðir og skipt verður um loftpúða farþegamegin. mbl.is/Guðjón

Bílaumboðið Hekla hefur innkallað Mitsubishi Lancer bifreiðar vegna galla í loftpúðum. Um er að ræða bíla af árgerðum 2003 til 2008. Á Íslandi eru 299 bílar sem falla undir þessa innköllun.

Þetta kemur fram á vef Neytendastofu.

Þar segir að ástæða innköllunar sé að við ákveðnar aðstæður er möguleiki á að raki safnist fyrir í ræsibúnaði loftpúða farþegamegin sem geti valdið því að púðinn blási ekki rétt út við árekstur. Bílarnir verða innkallaðir og skipt verður um loftpúða farþegamegin. 

mbl.is